Sérstakur kvennalisti bauð fram í bæjarstjórnarkosningum í Reykjavík 24. janúar 1908. Að frumkvæði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og Kvenréttindafélags Íslands buðu kvenfélögin í Reykjavík lista sem eingöngu var skipaður konum og vann sá listi mikinn kosningasigur og hlaut 20% greiddra atkvæða og náðu inn í bæjarstjórn fjórum fulltrúum. Það voru:
- Katrín Magnússon (1858-1932), formaður Hins íslenska kvenfélags
- Þórunn Jónassen (1850-1922), formaður Thorvaldsensfélagsins
- Bríet Bjarnhéðinsdóttir (1856-1940), formaður Kvenréttindafélags Íslands
- Guðrún Björnsdóttir (1853-1936), félagi í Kvenréttindafélagi Íslands.
Kosningabaráttan var mjög vel skipulögð. Reykjavík var skipt í níu hverfi og skipulega var hver kona með kosningarétt heimsótt og hún hvött til að kjósa. Kosningaskrifstofur voru opnaðar, fyrirlestrar haldnir um lagalega stöðu kvenna, kosningalögin og hin ýmsu bæjar- og sveitarstjórnarmál og gefin út kosningastefna.
Það má því segja að þær hafi stýrt fyrstu skipulögðu kosningabaráttu í Reykjavík.
Ítarefni:
- „Konur í Bæjarstjórn Reykjavíkur.“ Óðinn 1. maí 1908, bls. 11-13
- „Kvennaframboð í Reykjavík 1908-1918“, Kvennasögusafn Íslands. http://kvennasogusafn.is/index.php?page=kvennalistar-rvk skoðað 17. apríl 2015.
- Auður Styrkársdóttir, „„Vel byrjar það!“: Konur í bæjarstjórn í 100 ár“, Lesbók Morgunblaðsins 2. febrúar 2008, bls. 3
- Auður Styrkársdóttir: Barátta um vald. Konur í bæjarstjórn Reykjavíkur 1908-1922. (Reykjavík: Háskólaútgáfan 1994)
- Björg Einarsdóttir, „Brutu blað í stjórnmálasögunni“, Morgunblaðið 24. janúar 1988, bls. 26-27, 32-33
- Gísli Jónsson, Konur og kosningar (Reykjavík: Bókaútgáfa menningarsjóðs 1977)