Fyrsta konan kaus til bæjarstjórnar Reykjavíkur (3. janúar).
Kristín Bjarnadóttir (1812–1891) frá Esjubergi varð fyrst reykvískra kvenna til að nýta kosningarétt kvenna til sveitarstjórna frá 1882. Hún kaus til bæjarstjórnar 3. janúar 1888. Á fimmta tug kvenna var á kjörskrá en Kristín var sú eina sem nýtti sér rétt sinn. Kristín var ljósmóðir í Kjalarneshreppi og rak síðar kaffistofu Hermesar í Lækjargötu og vefnaðarvöruverslun.
Ítarefni:
- Frétt í Ísafold um kosningarnar
- Guðjón Friðriksson, „Konur á karlafundi. Öld liðin síðan fyrsta konan kaus í Reykjavík”, Ný saga 2 (1988), bls. 54-59
- „Kona neytti atkvæðisréttar: í bæjarstjórnarkosningum 1888“ Morgunblaðið 3. janúar 1988, bls. 38
- Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna. Ritstjórar Erla Hulda Halldórsdóttir og Guðrún Dís Jónatansdóttir. (Reykjavík: Kvennasögusafn Íslands 1998), bls. 129