Vilhelmína Lever varð fyrst kvenna á Íslandi til að taka þátt í opinberum kosningum í bæjarstjórnarkosningum á Akureyri.
Kosið samkvæmt dönskum lögum þar sem fram kom að „alle fuldmyndige Mænd“ hafi rétt til að kjósa sem útlagðist á íslensku þannig að allir fullmyndugir menn hefðu kosningarétt.
Vilhelmína Lever „verslunarborgarinna“ á Akureyri kaus í bæjarstjórnarkosningum á Akureyri 31. mars árið 1863 og aftur 3. janúar 1866. Kosningarétt höfðu samkvæmt lögum allir fullmyndugir menn. (Kvennasögusafn)
Umfjöllun Héraðsskjalasafnsins á Akureyri.
Vilelmína bjó um tíma í Nonnahúsi á Akureyri.
Ítarefni:
- Wikipedia
- Gísli Jónsson, „Hún hafði gott hjarta: Þáttur af fyrstu konu, sem „kaus“ á Íslandi. Íslendingur, 18. desember 1981, bls. 10-11
- Jón Hjaltason, „Fyrstu bæjarstjórnarkosningar á Akureyri“, Lesbók Morgunblaðsins, 17. nóvember 1990, bls. 6-7