Magnús Eiríksson (1808–1881) guðfræðingur sem varð einn af fyrstu karlmönnum á Norðurlöndum til að gerast talsmaður kvenna. Hann skrifaði bókina Breve til Clara Raphael undir nafninu Theodor Immanuel þar sem hann segir að konur standi körlum fyllilega jafnfætis þegar kemur að vitsmunum, tilfinningum og vilja. Þegar konur fái sömu kennslu og þjálfun og karlmenn eigi þær jafn gott með að valda hinum ýmsu embættum á sviði guðfræðinnar, lögfræðinnar og læknisfræðinnar.
Ítarefni:
- Jóhanna Þráinsdóttir, „Gleymdur liðsmaður kvenna: Um Magnús Eiríksson, guðfræðing og rithöfund, og framlag hans til frelsisbaráttu kvenna.“ Lesbók Morgunblaðsins 10. maí 1997, bls. 4-5
- Magnús Eiríksson, Breve til Clara Raphael: fra Theodor Immanuel . (Kaupmannahöfn, 1851)
- „Vakti einna fyrstur á athygli á kúgun kvenna“, Morgunblaðið 24. des. 2003
- Wikipedia
- Æviágrip sem birtist í Tímariti Hins íslenzka bókmentafélags 1887
Bréfasafn Magnúsar er varðveitt á handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafn: Lbs. 302-305 fol Magnús Eiríksson cand. theol. bréfasafn