Árið 1887 hélt Bríet Bjarnhéðinsdóttir (1856–1940) fyrst íslenskra kvenna opinberan fyrirlestur. Fyrirlesturinn nefndist „Fyrirlestur um hagi og rjettindi kvenna“ og var haldinn í Góðtemplarahúsinu 30. desember 1887. Þar fór Bríet yfir stöðu kvenna á þessum tíma, bæði á á Íslandi og erlendis. Hún lýsti því hvernig konur væru smásaman að fá aukin réttindi til náms og starfa. Einnig fjallaði hún um launamun kynjanna. Aðgangseyrir var 50 aurar og góður rómur var gerður að erindi Bríetar.
Í Þjóðólfi sagði: „Fyrirlesturinn var fróðlegur og fluttur með málsnilld og mikilli málfegurð“ og í Ísafold sagði: „Fyrirlesturinn var skipulega saminn, orðfæri hreint og fjörugt, og framburður skýr og áheyrilegur“. Hann gefin út stuttu síðar.
Meðal þess sem Bríet sagði um konur í fyrirlestrinum var:
Vér verðum að losa oss við hleypidóma og vana, og hætta að dæma það óhæfu, þótt einhver af oss vilji ryðja sér aðra götu en vér höfum sjálfar gengið. Vér þurfum að mennta oss og leitast við að verða sem færastar í hvaða stöðu sem fyrir kann að verða, að reyna að verða sem sjálfstæðastar, ef vér viljum ekki verða neinum til byrði. Vér þurfum að verða samtaka og félagslegar. Vér verðum að stefna áfram.
Matthías Jochumsson skrifaði grein í tveimur hlutum í Fjallkonuna (fyrri hluti og seinni hluti) um fyrirlestur Bríetar og réttindi kvenna.
Ítarefni:
- Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna. Ritstjórar Erla Hulda Halldórsdóttir og Guðrún Dís Jónatansdóttir. (Reykjavík: Kvennasögusafn Íslands 1998) bls. 128
- Auður Styrkársdóttir, „Forspjall“. Í John Stuart Mill, Kúgun kvenna. (Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag 1997) bls. 48-60.
- Björg Einarsdóttir, „Stórveldi í sögu íslenskra kvenna“. Úr ævi og starfi íslenskra kvenna. II. bindi (Reykjavík: Bókrún 1986), bls. 224-249
- Bríet Héðinsdóttir, Strá í hreiðrið: bók um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur byggð á bréfum hennar. (Reykjavík: JPV 2006)
- Sigríður Th. Erlendsdóttir, Veröld sem ég vil: Saga Kvenréttindafélags Íslands 1907-1992 (Reykjavík: Kvenréttindafélag Íslands 1993) bls. 30-50.