Fyrsta konan kosin í bæjarstjórn á Akureyri

Kristín Eggertsdóttir var fyrsta konan sem kosin var í bæjarstjórn á Akureyri.

Hún var menntuð úr Kvennaskólanum á Laugalandi og var við nám í Noregi árið 1905–1907.kristinegg

Kristín starfaði um tíma við kennslu og varð síðan forstöðukona Sjúkrahússins á Akureyri árið 1907.

Kristín var kosin í bæjarstjórn Akureyrar árið 1911 af sérstökum kvennalista.

Listinn hlaut 17% atkvæða og sat Kristín í bæjarstjórn í þrjú ár. Í bæjarstjórnartíð sinni sat hún í kjörstjórn, skólanefnd og fátækranefnd.

Ítarefni: