Undirskriftarlistar eftir landshlutum
Íslenskar konur um land allt söfnuðu undirskriftum og skoruðu á Alþingi að breyta stjórnskipunarlögum og veita konum kosningarétt og rétt til kjörgengis.
Undirskriftarlistarnir eru frá árunum 1895, 1907 og 1913. Veldu ár til að sjá fjölda undirskrifta eftir landshlutum, og landshluta til að skoða undirskriftarlistana sjálfa. Undirskriftarlistarnir eru varðveittir í skjalasafni Alþingis.

Alþingismál 1895
Erindi frá 1002 konum um aukin kvenréttindi.
„... Vér leyfum oss því hér með virðingarfyllst að skora á Alþingi Íslendinga að breyta á næsta þingi stjórnskipunarlögum Íslands á þann hátt, að íslenzkum konum verði með þeim veittur fullkominn stjórnarfarslegur kosningaréttur og kjörgengi, með sömu skilyrðum og íslenzkum karlmönnum.“
| Landshluti | Undirskriftir |
|---|---|
| Reykjavík | 455 |
| Þingeyjarsýsla | 167 |
| Múlasýslur | 416 |
| Skaftafellssýslur | 89 |
| Akureyri | 80 |
| Snæfellsnessýsla | 7 |
| Barðastrandarsýsla | 104 |
| Mýra- og Borgarfjarðarsýsla | 76 |
| Ísafjarðarsýsla | 17 |
| Skagafjarðarsýsla | 17 |
| Árnessýsla | 296 |
| Rangárvallasýsla | 37 |
| Gullbringu- og Kjósarsýsla | 230 |
| Alls | 1.991 |
Skaftafellssýslur 1895: 89 undirskriftir
Dagbók Alþingis 1895, III. bindi, bls. 0367r–0369r
5 blaðsíður. Smelltu á síðu til að sjá hana stærri.