Undirskriftarlistar eftir landshlutum
Íslenskar konur um land allt söfnuðu undirskriftum og skoruðu á Alþingi að breyta stjórnskipunarlögum og veita konum kosningarétt og rétt til kjörgengis.
Undirskriftarlistarnir eru frá árunum 1895, 1907 og 1913. Veldu ár til að sjá fjölda undirskrifta eftir landshlutum, og landshluta til að skoða undirskriftarlistana sjálfa. Undirskriftarlistarnir eru varðveittir í skjalasafni Alþingis.

Dagbók Alþingis 1907
Áskorun til Alþingis að:
„hlutast til um, að konum, jafnt giftum sem ógiftum, verði veittur kostingarréttur og kjörgengi til alþingis, ef þær fullnægja sömu skilyrðum, sem sett eru, að því er karlmenn snertir.“
| Landshluti | Undirskriftir |
|---|---|
| Reykjavík | 1.956 |
| Þingeyjarsýsla | 723 |
| Múlasýslur | 678 |
| Skaftafellssýslur | 496 |
| Akureyri + Oddeyri | 280 |
| Snæfellsnessýsla | 441 |
| Barðastrandarsýsla | 483 |
| Mýrasýsla | 278 |
| Borgarfjarðarsýsla | 405 |
| Ísafjarðarsýsla | 947 |
| Skagafjarðarsýsla | 643 |
| Árnessýsla | 964 |
| Rangárvallasýsla | 749 |
| Gullbringu- og Kjósarsýsla | 645 |
| Strandasýsla | 243 |
| Húnavatnssýsla | 569 |
| Dalasýsla | 370 |
| Eyjafjarðarsýsla | 424 |
| Kaupmannahöfn | 9 |
| Alls | 11.303 |
Rangárvallasýsla 1907: 749 undirskriftir
Dagbók Alþingis 1907, III. bindi, bls. 0024r–0024v
2 blaðsíður. Smelltu á síðu til að sjá hana stærri.
Dagbók Alþingis 1907, III. bindi, bls. 0173r–0201v
58 blaðsíður. Smelltu á síðu til að sjá hana stærri.