Undirskriftarlistar eftir landshlutum
Íslenskar konur um land allt söfnuðu undirskriftum og skoruðu á Alþingi að breyta stjórnskipunarlögum og veita konum kosningarétt og rétt til kjörgengis.
Undirskriftarlistarnir eru frá árunum 1895, 1907 og 1913. Veldu ár til að sjá fjölda undirskrifta eftir landshlutum, og landshluta til að skoða undirskriftarlistana sjálfa. Undirskriftarlistarnir eru varðveittir í skjalasafni Alþingis.

Dagbók Alþingis 1913
Undirskriftarlistar þar sem skorað er á Alþingi að:
„breyta á næsta þingi stjórnarskipunarlögum Íslands á þann hátt, að íslenzkum konum verði með þeim veittur fullkominn stjórnarfarslegur kosningarréttur og kjörgengi, með sömu skilyrðum og íslenzkum karlmönnum.“
| Landshluti | Undirskriftir |
|---|---|
| Reykjavík og blandað | 2.024 |
| Þingeyjarsýsla | 365 |
| Múlasýslur | 301 |
| Skaftafellssýslur | 131 |
| Akureyri | 302 |
| Snæfellsnessýsla | 150 |
| Barðastrandarsýsla | 102 |
| Mýrasýsla | 47 |
| Borgarfjarðarsýsla | 149 |
| Ísafjarðarsýsla | 191 |
| Skagafjarðarsýsla | 109 |
| Árnessýsla | 199 |
| Rangárvallasýsla | 196 |
| Gullbringu- og Kjósarsýsla | 301 |
| Strandasýsla | 45 |
| Húnavatnssýsla | 341 |
| Dalasýsla | 67 |
| Eyjafjarðarsýsla | 180 |
| Alls | 5.200 |
Barðastrandarsýsla 1913: 102 undirskriftir
Dagbók Alþingis 1913, IV. bindi, bls. 0037r–0037v
2 blaðsíður. Smelltu á síðu til að sjá hana stærri.
Dagbók Alþingis 1913, IV. bindi, bls. 0177r–0180r
7 blaðsíður. Smelltu á síðu til að sjá hana stærri.