Valdimar Ásmundson (1852–1902) var ritstjóri og stofnandi Fjallkonunar. Hann giftist Bríeti Bjarnhéðinsdóttur árið 1888.
Hann studdi kvenréttindi og birti margar greinar í Fjallkonunni um þau mál. Árið 1885 skrifaði hann til að mynda greinina „Kvenfrelsi“ þar sem segir meðal annars:
„…hefir alþingi með lögum um kosningarétt kvenna, dags. 12. maí 1882, þar sem sjálfstæðum konum er veittr kosningaréttr í sveitamálum og kyrkjumálum, orðið á undan öllum nágrannaþjóðum vorum, og benda nú einkum Norðmenn á dæmi Íslendinga í þessu atriði og hvetja til að breyta eftir því. Vér ættum því síðr að láta hér við staðar nema“.
Ítarefni:
- Matthías Viðar Sæmundsson, Héðinn, Bríet, Valdimar og Laufey: Fjölskylda og samtíð Héðins Valdimarssonar. (Reykjavík: JPV 2004)
- Wikipedia