Sigríður Þorsteinsdóttir

18. maí 1841 - 6. október 1924

Sigríður Þorsteinsdóttir

Sigríður Þorsteinsdóttir (1841–1924) stofnaði, ritstýrði og gaf út blaðið Framsókn mánaðarlega ásamt dóttur sinni Ingibjörgu Skaptadóttur árin 1895–1899. Blaðið lagði mikla áherslu á kvenfrelsismál og eins og sagt var frá strax í fyrsta tölublaði:

„Aðaltilgangur Framsóknar er sá, að hlynna að menntun og sjálfstæði íslenzkra kvenna, og að undirbúa þær til að girnast og nota þau réttindi er aldirnar kunna þeim að geyma“.

Framsókn 8. janúar 1895, bls.1

Ítarefni: