Jarþrúður Jónsdóttir (1851–1924) var ritstjóri Framsóknar í nokkur ár.
Á sínum yngri árum dvaldi hún við nám bæði í Danmörku og Skotlandi
Hún starfaði seinna sem kennari í Kvennaskólanum í Reykjavík.
Hún starfaði eitt ár, 1889, við þingskriftir, fyrst íslenskra kvenna.
Hún varð ritstjóri Framsóknar árið 1899 eftir að hún keypti blaðið ásamt Ólafíu Jóhannsdóttur. Þær ritstýrðu því í þrjú ár til áramóta 1901–1902.
Hún var ritari og einn af stofnendum Hins íslenska kvenfélags auk þess að vera í mörg ár virk Thorvaldsensfélaginu.
Árið 1886 gaf hún út bókina: Leiðarvísir til að nema ýmsar kvennlegar hannyrðir ásamt Þóru Pjetursdóttur og Þóru Jónsdóttur.
Ítarefni:
- „Frú Jarþrúður Jónsdóttir“ 19. júní 1. júlí 1924, bls. 49-50
- Handritasafn Lbs.-Hbs. varðveitir bréfasafn hennar