Sigþrúður Friðriksdóttir varð fyrsti formaður Hins íslenska kvenfélags þegar það var stofnað 26. janúar 1894. Hún var gift Jóni Péturssyni háyfirdómara og talið er að velgengi félagsins sé að hluta til tengd því hve áhrifamiklar konur völdust til forystu í því.
„Það var viturlega skipað i 18 kvenna nefndina. Háyfirdómarafrúin var kjörin forseti. Hún hafði efni góð og góð húsakynni. Hún var höfðingi í lund og fyrirmannleg að vallarsýn. Um hana hlutu konur bæjarins að fylkja sér.“
– Ragnhildur Pétursdóttir, „Fimmtíu ára minning Hins íslenska kvenfélags“, Nýtt kvennablað 1. maí 1944, bls. 1
Hún sat um tíma í ritnefnd ársriti félagsins
Hún var stjúpmóðir Jarþrúðar Jónsdóttur.
Ítarefni:
- Ársrit Hins íslenzka kvenfélags
- Handrit.is
- Ragnhildur Pétursdóttir, „Fimmtíu ára minning Hins íslenska kvenfélags“, Nýtt kvennablað 1. maí 1944, bls. 1-3
- Sigríður Th. Erlendsdóttir, Veröld sem ég vil: Saga Kvenréttindafélags Íslands 1907–1992 (Reykjavík: Kvenréttindafélag Íslands 1993), bls. 22-23