Forseti Íslands

Mynd af Vigdís.is
Mynd af Vigdís.is

Vigdís Finnbogadóttir (fædd 1930) var kosin forseti Íslands 1980 fyrst íslenskra kvenna. Hún var auk þess fyrsta konan í heiminum sem var lýðræðislega kjörin í embætti forseta.

Hún var forseti Íslands 1980-1996.

Vigdís nam frönsku og franskar bókmenntir við háskólann í Grenoble og Sorbonneháskóla í París. Hún er með BA próf í frönsku, ensku og uppeldis- og kennslufræði frá Háskóla Íslands.

Meðal þess sem hún hefur starfað við er leiðsögn, kennsla og hún var fyrst íslenskra kvenna leikhússtjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1972-1980.

Ítarefni:

vigdis.is 

Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna. Ritstjórar Erla Hulda Halldórsdóttir og Guðrún Dís Jónatansdóttir. (Reykjavík: kvennasögusafn Íslands 1998) bls.60-61

Wikipedia.is