Theodóra Thoroddsen (1863–1954) var skáld og kvenréttindakona.
Hún fæddist í Dölunum og var dóttir Guðmundar Einarssonar og Katrínar Ólafsdóttur Sívertsen.
Hún útskrifaðist úr Kvennaskólanum í Reykjavík árið 1879 og giftist Skúla Thoroddsen árið 1884.
Þulur eftir hana voru fyrst gefnar út árið 1916 en ýmis kvæði, sögur og stökur höfðu verið birtar annars staðar, eins og til dæmis í Mánaðarriti Lestrarfélags kvenna í Reykjavík. En hún sat jafnframt um tíma í stjórn Lestrarfélagsins.
Hún tók virkan þátt í kvenréttindabaráttu á Íslandi og var í 4. sæti á Kvennalistanum sem bauð fram til Alþingis árið 1922.
Ítarefni:
- Freyja Jónsdóttir, „Vonarstræti 12“, Morgunblaðið 19. mars 2002, bls. 30-31
- Helga Kress, „Theodóra Thoroddsen 1863-1954“, Stúlka. Ljóð eftir íslenskar konur. Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands, Reykjavík 2001, bls. 160
- Skald.is
- Theodóra Thoroddsen, Þulur, 1916
- „Vonarstræti 12“, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO
- Wikipedia
Einkaskjöl Theodóru Thoroddsen eru varðveitt á handritasafni.